top of page

 
LINDA

GUÐLAUGSDÓTTIR

Linda Guðlaugsdóttir-Linda Flateyjardalur_4_2025.jpeg

Gsm: +354 694 7988

  • Instagram

Linda Guðlaugsdóttir gekk í Vatnslitafélag Íslands 2021. Hún útskrifaðist í Grafískri hönnun frá Myndlista og handíðaskóla Íslands 1990. Hún starfaði við fagið í rúm tuttugu ár við tímaritahönnun.

Í dag hef ég tækifæri til að ferðast um Ísland og kynnast þeirri fegurð. Ég hef gengið víða með allt á bakinu um eyðislóðir, oftast í hóp. Ég er með skissubók og vatnslitasett í farangrinum. Auðnin, birtan, veðurbrigðin og átök gróðurs við að lifa af heilla mig. Á vinnustofunni tekst ég á við upplifanirnar. Heillandi og hrátt landslag. Hiti, mýkt og jöklar. 

Félög:

Vatnslitafélag Íslands 

Samband íslenskra myndlistarmanna SÍM

Félag íslenskra teiknara FÍT

Norrænu vatnslitasamtökin NAS

Myndlistarnám:

Myndlista og handíðaskóli Ísland, Grafísk hönnun 1985-1990

Myndlistarskóli Reykjavíkur 1982-1984 

Vatnslitanámskeið: Pétur Behrens og Gunnlaugur S. Gíslason nokkra vetur. Styttri námskeið, Vicente Garcia Fuentes, Herman Pekel, Eudes Correia og Jorge Corpuna.

Sýningar:

2025 Hér er líkami, samsýning módelteiknara, Gallerí Göng og Tilbrigði, samsýning Vatnslitafélagsins, Gallerí Göng.

2024 Vonarland, einkasýning í Gallerí Göng Háteigskirkju.

Nokkrar samsýningar hjá Vatnslitafélaginu síðan 2021

2017 Úti. Tússteikningar af landslagi í kringum Reykjavík, unnar úti. Einkasýning á vegg í Stúdíó Z í Anarkíu. 

Linda Guðlaugsdóttir-Flateyjardalur_litil.jpeg

Lítil skissa úr Flateyjardal

Herðubreið (27 x 38 cm)

Glanni (27 x 38 cm)

Undir Snæfelli ( 38 x 27 cm)

Nautnaseggir (27 x 38 cm)

Nautnaseggur (27 x 38 cm)

Þjófatindar (30 x 30 cm) 

Þórsmörk (30 x 30 cm) 

Sólstafir (30 x 30 cm)

Snókalönd (30 x 30 cm)

© 2025 The Icelandic Watercolour Society / Vatnslitafélag Íslands

bottom of page